Alltaf með falleg blóm í vasa - eilífðarblóm eru snilld

Alltaf með falleg blóm í vasa - eilífðarblóm eru snilld

Ég elska að skreyta heimilið með blómum og á góðum degi eru blómavasar í nánast hverju horni, hvort sem það séu þurrkuð blóm, fersk eða jafnvel gerviblóm… sem er mikið skemmtilegra að kalla eilífðarblóm – því þú munt jú aldrei þurfa að henda þeim. Ég bætti nýlega við fallegum blómum frá breska innanhússhönnuðinum Abigail Ahern sem fást í Dimm og hér dró ég einnig fram úr geymslunni bleikar blóndarósir en það er einmitt snilldin við eilífðarblóm að hægt er að setja saman vendi og bæta við aðra að vild hvenær sem mig langar. Ég elska þó áfram fátt meira en fersk blóm en þetta er tilvalið að nota á móti, stundum bæti ég við 1-2 eilífðarblómi við í vasa með lifandi blómum í sem eru að syngja sitt síðasta.

Ég hef keypt mér reglulega eilífðarblóm í gegnum tíðina og á núorðið til smá safn ♡

Back to blog