7 litríkar hugmyndir fyrir heimilið
Sumarið kallar á fleiri liti inn á heimilið - hvort sem það sé einfaldlega með ferskum blómum í vasa, kertum í skemmtilegum litum, ferskum púðum á sófann eða einfaldlega sumarlegan kaffibolla í þínum uppáhalds lit. Eða að fara alla leið og mála veggina í lit - ég lofa ykkur því að það er gott fyrir sálina að bæta lit í lífið:)

Málaðu loftið í björtum lit, sjáið hvað ljósblátt loftið fer vel við beige/gul litaða veggina -

Mála í bleiku er alltaf góð hugmynd -

Gylltur krani og gylltar höldur við þennan fullkomna græna lit er mjög gott kombó -

Þessi bleiki litur stelur allri athygli og er svo sannarlega eitthvað til að leika eftir -

Málaðir listar í lit er ótrúlega góð hugmynd, sjáið hvað þetta er fallegt!

Litrík rúmföt gleðja á þreyttum morgnum og auðveld leið til að bæta lit við heimilið -

Myndir : Svartahvitu Pinterest
Málað inn í skápa er góð hugmynd og frábær leið til að fríska upp á gömul húsgögn -
Fallegt ekki satt ♡