Svart á hvítu er eitt af elstu íslensku lífstílsbloggunum, stofnað árið 2009 þegar ég var við nám í vöruhönnun í Hollandi. Síðan þá hefur hönnun verið rauði þráðurinn — bæði hér á blogginu og í starfi mínu við hönnunarverkefni, fjölmiðla, samfélagsmiðla og efnisgerð. Svart á hvítu var hluti af Trendnet frá stofnun þess og þar byggðist upp stór og tryggur lesendahópur. Í dag hefur Svart á hvítu flutt heim til Studio Flamingo og hér heldur sagan áfram.

Hér fjalla ég um falleg heimili, hönnun, nýjungar og innblástur úr öllum áttum — alltaf með persónulegum vinkli, litagleði og ást á öllu því fallega. Takk fyrir að lesa — hvort sem þú hefur fylgt Svart á hvítu frá 2009 eða ert nýkomin/n hingað. ♡

Nýtt á blogginu