Uppáhalds hornið á heimilinu – allt að koma saman

Uppáhalds hornið á heimilinu – allt að koma saman

Góðir hlutir gerast hægt er mín mantra sem ég þarf reglulega að minna mig á ♡ Það eru margir mánuðir síðan við ætluðum að klára að græja eldhúskrókinn en svo kemur alltaf eitthvað nýtt upp á sem gengur fyrir, bæði verkefni og lífið sjálft ♡ Hér elska ég að sitja og fletta blöðum, horfa út um gluggann og stundum vinna í tölvunni. Ég er enn eftir að líma lista framan á skápahurðarnar til að gera útlitið aðeins meira elegant og mála aðra umferð ásamt því að púðarnir allir áttu bara að vera tímabundin lausn þar til ég klára að hanna bakið og útfæra hvernig ég geng frá ofninum sem er undir glugganum. Ah alltaf skemmtileg verkefni framundan!

Nýlega eignaðist annars dóttir mín þennan dásamlega fallega matarstól frá Nofred sem algjörlega fullkomnar stólamixið á heimilinu, en Mouse Junior matarstóllinn hefur verið á óskalistanum alveg síðan Birta Katrín eignaðist litla Mouse stólinn í herbergið sitt og var hann fenginn að gjöf frá Nofred. 

Litur á vegg: Svönubleikur frá Sérefni, einnig gereftin kringum hurðina sem við settum á nýlega. // Borðið: Tom Dixon frá Lumex, einnig Gubi lampinn í glugganum. // Ljós yfir borði er PH5 keypt í Epal og bleika Sjöan er afmælisútgáfa frá Fritz Hansen einnig keypt í Epal. 

Púðarnir eru úr öllum áttum og mér finnst þeir gera hornið alveg extra kósý og heimilislegt. Það þarf ekki allt að vera fullkomið, alveg langt því frá og því um að gera að henda púðum ofan á hálfkláraðan bekk og nota hann þar til allt fær að smella. Bleiku púðarnir eru jú frá vinkonum mínum í Ihanna home og eru í miklu uppáhaldi!

Ég vona annar að þið munið eiga góðan dag!

Back to blog

Leave a comment