Skilmálar
Pantanir og greiðsla
Öll verð hjá Studio Flamingo eru í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti. Pöntun telst staðfest þegar greiðsla hefur borist.
Afhending
Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og kostur er. Afhendingartími getur verið mismunandi eftir því hvort um lagervöru eða sérpöntun er að ræða. Ef tafir verða á afhendingu höfum við samband.
Skil og réttur til að falla frá kaupum
Við kaup í vefverslun hefur neytandi almennt 14 daga frá afhendingu vöru til að falla frá kaupum. Vöru skal skilað ónotaðri, óskemmdri og í sama ástandi og hún var við afhendingu.
Sérgerðar vörur
Réttur til að falla frá kaupum gildir almennt ekki um vörur sem eru sérgerðar eða sérsniðnar sérstaklega að óskum viðskiptavinar. Þetta á t.d. við um sérhannaða vendi, blómaskreytingar og innsetningar sem unnar eru samkvæmt sérstakri pöntun.
Gallar eða skemmdir
Ef vara berst skemmd eða gölluð biðjum við þig að hafa samband við okkur eins fljótt og auðið er og senda myndir af vörunni og umbúðum.
Litir og útlit
Við leggjum áherslu á að myndir á vefnum gefi sem réttusta mynd af vörunum. Litir geta þó birst örlítið mismunandi eftir skjám. Þar sem margar skreytingar eru handgerðar geta einnig verið smávægileg frávik milli eintaka.
Sérpantanir og viðburðir
Verð og skilmálar vegna sérverkefna, viðburða, leigu og stærri innsetninga eru staðfest sérstaklega í tilboði eða samningi.
Leiga á skreytingum
Um leigu á blómaskreytingum, vösum, stöndum og öðrum búnaði gilda sérstakir leiguskilmálar Studio Flamingo. Verð, leigutími, afhending, uppsetning og skil eru staðfest fyrir hvert verkefni. Leigutaki ber ábyrgð á leigumunum á leigutímanum og getur borið kostnað vegna tjóns, taps eða skemmda samkvæmt leiguskilmálum.
Hafa samband
Studio Flamingo
Norðurbakki 1
220 Hafnarfjörður
Ísland
info@studioflamingo.is