BLÓMAÁSKRIFT
Falleg blóm án fyrirhafnar. Við bjóðum verslunum, veitingarstöðum, skrifstofum og öðrum fyrirtækjum sérsniðnar blómaskreytingar í áskrift.
Við sjáum um uppsetningu og endurnýjum blómaskreytingar reglulega svo þær henti hverri árstíð, rými og stemmingu.
Fallegt aftur og aftur. Fyrirtæki geta endurnýtt sömu skreytingarnar, fært þær á milli rýma og breytt þeim eftir árstíðum og viðburðum. Þannig endast þær lengur og minna fer til spillis.
FALLEG UMGJÖRÐ. EKKERT VESEN
Blómaáskrift með vönduðum eilífðarblómum fyrir fyrirtæki sem vilja fallega og faglega umgjörð — án þess að þurfa að hugsa um blómin sjálf.
Áskriftin er sérsniðin að hverju rými; stærð, litir, staðsetning og tíðni endurnýjunar eru valin eftir þörfum fyrirtækisins. Útlitinu má síðan breyta eftir árstíðum, viðburðum eða einfaldlega þegar þig langar í eitthvað nýtt. Við sjáum um allt ferlið. Þegar komið er að endurnýjun sækjum við núverandi skreytingu og komum með með nýja og ólíka skreytingu í staðinn, tilbúna í rýmið.
Blómin sem við sækjum fara aftur í safn Studio Flamingo og fá nýtt líf í öðrum skreytingum — þannig fær hvert blóm lengra líf og nýtt hlutverk aftur og aftur, með áherslu á hringrás, endurnýtingu og minni sóun.
-
01 - HVAÐA STÍLL?
Veljum stærð og stíl blómaskreytingarinnar sem hentar rýminu og ímynd fyrirtækisins.
-
02 - HVERSU OFT?
Þú velur taktinn — mánaðarlega, annan hvern mánuð, þriðja hvern eða eftir árstíðum.
-
03 - BARA NJÓTA
Uppsetning og regluleg endurnýjun er í okkar höndum. Þið njótið blómanna, án fyrirhafnar.
Skilaboð
Lavazza
Arion banki
Gina Tricot