Blóm fyrir stóra daginn

Falleg blóm hafa einstakt lag á að umbreyta rýmum og skapa stemmingu. Hjá Studio Flamingo getur þú leigt einstakar blómaskreytingar fyrir stóra daginn - allt frá látlausum smáatriðum yfir í stórar blómaskreytingar. Með því að leigja blómin getur þú skapað glæsilega umgjörð á einfaldan og hagkvæman hátt. Í boði er fjölbreytt úrval af vönduðum skreytingum - úr blómum sem líta út eins og alvöru blóm.

Saman finnum við rétta útfærslu sem passar fyrir þinn dag. Hafðu samband, segðu okkur frá brúðkaupinu og við gerum tillögu og tilboð sem hentar þinni veislu.

Hvítur brúðkaupsbogi skreyttur hvítum blómum með ekta áferð fyrir brúðkaupsathöfn. Handgerður og einstakur.
Borðskreytingar fyrir brúðkaupsveislur úr hvítum blómum. Margir möguleikar af litum og blómum.
Stór blómvöndur fyrir brúðkaup og veislur, tilvalinn við inngang eða á barinn.
Blómaskreytingar fyrir veislu með orkideum, hortensíum og litríkum blómum.
Sérgerðar blómaskreytingar fyrir brúðkaup og veislur í hvítum og ljósum tónum. Sérhannað fyrir rýmið og tilefnið.
Blómahlið úr hvítum og grænum blómum fyrir brúðkaup og veislur. Fallegt við inngang í sal, við háborðið eða við myndavegg. Einstök fegurð.
Stórar hvítar blómaskreytingar fyrir brúðkaup með orkideum, liljum og rósum.
Borðskreyting með hvítum og grænum blómum fyrir brúðkaup - Studio Flamingo.
Borðskreyting með vönduðum blómum með ekta áferð, hvítar orkideur og fleiri falleg blóm fyrir brúðkaupsveislu.

Gerum daginn ógleymanlegan

Segðu okkur frá brúðkaupinu og við finnum útfærslu sem passar við þinn dag, stíl og stemmingu.