Óhrædd við liti í tyggjóbleiku sumarhúsi

Óhrædd við liti í tyggjóbleiku sumarhúsi

Ég veit ekki með ykkur en að búa í bleiku húsi myndi veita mér mjög mikla gleði ♡ Hér er á ferð dásamlega fallegt sumarhús hjónanna Mikkel Hansen og Stephanie Gundelach í danskri sveit. Aðspurð segjast þau deila sama smekk þegar kemur að heimilinu sem einkennist af klassískri danskri hönnun í bland við flóamarkaðsgersemar og listaverk sem þau nota oft sem útgangspunkt fyrir litaval rýmisins og er útkoman oftast mjög litrík og skemmtileg.

Þetta fallega innlit er í boði HAY - þar sem hönnun þeirra er að finna í hverju horni.

Myndir : HAY 

Back to blog

Leave a comment