Blogg

Ég heiti Svana Lovísa Kristjánsdóttir og er hönnuður, fagurkeri og stofnandi Studio Flamingo.

Hönnun og fallegir hlutir hafa verið rauður þráður í lífi mínu og starfi í mörg ár. Ég er menntuð í vöruhönnun frá Listaháskóla Íslands og stundaði einnig nám við Design Academy Eindhoven. Ég hef starfað í íslenska hönnunarheiminum í yfir 15 ár, meðal annars við efnismiðlun, stíliseringar og skapandi verkefni.

Studio Flamingo varð til árið 2023 úr löngun til að skapa eitthvað mitt eigið – þar sem ástin á blómum, litum og hönnun fær að njóta sín.

„Ég hafði lengi leitað að gerviblómum sem mér fannst nógu raunveruleg. Ég elska fersk blóm, en varð alltaf jafn leið þegar fallegur vöndur fór að visna og endaði að lokum í ruslinu. Eftir mikla leit fann ég loksins blómin sem ég hafði verið að leita að — og þar byrjaði hugmyndin að Studio Flamingo.“

Svana, stofnandi Studio Flamingo.