1
/
of
3
Húm
Húm
Regular price
19,900 ISK
Regular price
Sale price
19,900 ISK
Unit price
/
per
VSK innifalinn
Shipping calculated at checkout.
Couldn't load pickup availability
Deila
Húm er fágaður eilífðarvöndur í djúpum vínrauðum tónum. Flauelsmjúkir valmúar með dökkum miðjum og tvær vínrauðar hortensíur mynda kjarnann. Ein dökkfjólublá kallalilja rís upp úr vendinum og gefur honum glæsilegt og listrænt yfirbragð. Léttur, grænn aspas rammar inn litina og gefur vendinum loft og hreyfingu.
Vöndurinn er hreinni og einfaldari í formi og nýtur sín vel þar sem plássið er minna, t.d. á hillu, náttborði, skrifborði eða í forstofu. Hann er fallegur yfir haust, aðventu og jól, en nógu tímalaus til að standa allt árið.
- Eilífðarblóm: valmúar, hortensía, kallalilja og aspas
- Djúpir vínrauðir, fjólubláir og grænir tónar
- Raunveruleg áferð og litir
- Þarf hvorki vatn né umhirðu
- Ofnæmisvænn kostur í stað lifandi blóma
